Author: admin

  • Við settum sólarsellu á bílinn fyrir nokkru síðan, en það átti eftir að tengja hana. Við Steingrímur réðumst í það verkefni. Rafhlaðan sem við ætluðum að tengja selluna við átti að vera undir bílstjórasætinu. Við tókum sætið úr bílnum, en undir því var ekkert batterí. Við fundum út úr því og núna hleður sellan inn…

  • Aftur gott veður í dag. Tókum lestina upp til Mer du Glase. Alveg rosalega fallegt. Við Margrét Hrönn gengum upp í um klukkutíma og sáum vel yfir. Helen skólasystir Kristrúnar Maríu úr MA var þarna með fjölskyldu sína. Börnin smullu saman og allir áttu góðan dag. Borðuðum á fínum veitingastað, ég fékk mér lambaskanka sem…

  • Komum til Chamonix í gærkvöldi og byrjuðum daginn á að fara með kláf upp í 2840 metra hæð. Björn og Katla stóðu sig með prýði, en miðasölukonan reyndi að telja okkur ofan af því að taka Björn með. Börn fá oft hlustarverk á leiðinni niður, sérstaklega þegar þau eru kvefuð og kokhlustin virkar ekki vel.…

  • Nú er Bensi aftur kominn á kreik. Við lögðum af af stað frá Luxembourg 26.07 og ókum sem leið lá suðir til Dijon í Frakklandi. Gistum þar á fínu tjaldstæði rétt utan við bæinn. Næsta morgun var oppholdsvær, eins og norðmenn segja. Við keyptum okkur self-guided tour um borgina. Það reyndist hin besta hugmynd. Borgin…

  • Á morgun er líklegt að Vigfús verði sleginn af. Það brotnaði einhver spyrna og ef Mercedes Benz bætir ekki það tjón verður honum lógað. En það er skammt stórra högga á milli. Við vonumst til að fá Úrsúlu afhenda á morgun. Úrsúla þýðir birna á latínu. Við báðum Ursula von der Leyen að tilkeyra ráðherrabílinn.…

  • Við erum í þessum fornfræga víngerðarbæ. Hér hafa fundist fornminjar, t.d. vínskipið. Það var endurgert og liggur hér bundið við bryggju. En líka þessi sena sem sýnir “Lady of the house at her morning toilet”. Þetta er sérlega gott dæmi um þýskt skipulag. Hún notar nefnilega tímann til að fá hárgreiðslu og speglar sig í…

  • Mér hefur alltaf þótt þetta skrítið orð. Í Svíþjóð voru bæir þrennskonar. Stapelstaðir höfðu einkarétt á verslun við útlönd, svo komu Uppstaðir og loks Kaupángar. Þetta hefur ekkert með “angre” eða eftirsjá að gera, en kannski er ég sá eini sem fékk þá flugu í höfuðið. Við förum stundum afar þægilega leið þegar við verslum…

  • Þarft þú að auglýsa? Hér við hliðina er laust pláss sem hægt er að kaupa svo að ég geti nú borgað Audi Q8 ráðherrabíl sem ég lofaði að borga næstkomandi mánudag. Verð samningsatriði.

  • Nú erum við á húsbílastæði í Naumagen-Dhron. Allt tipp topp nema helst innfæddir. Swisslendingar við hliðina á okkur, alveg ágætir. Þjóðverjarnir gera ekki annað en ganga um með hundkvikindi til að láta þau skíta. Hér sést ekki barn, fyrir utan Kötlu og Björn sem koma aftur í fyrramálið. Við erum með hjólastatív í skottinu og…

  • Við erum að ferðast um Frakkland og höfum tekið eftir nokkrum mjög stórum grafreitum og fjöldagröfum. Skoðum einn þann strærsta í gær þar sem 35,000 frakkar eru grafnir og 14,000 þjóðverjar í í næsta reit. Það voru svakalegir bardagar við Verdun-sur-Mause (þar sem við erum) í byrjun fyrri heimssstyrjaldarinnar þar sem 714,231 hermenn létu lífið…