Við eru á vesturströnd Jótlands, Søndervig camping & stellplatz. Hér eru aðallega þjóðverjar. Við hjóluðum í suður, framhjá Hvide Sande, en sá staður ætti að vera lesendum kunnugur, að minnsta kosti þeim sem horfa á glæpaseríur. Fínn stígur og ágætt veður. Samtals 51 km í dag. Skoðuðum þennan bunker, en Hitler lét reisa fjöldann allan af byrgjum sem þessu.

